Hoppa yfir valmynd

08 Sveitarfélög og byggðamál

Innviðaráðuneytið

Skilgreining málefnasviðs

Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð innviðaráðherra. Það skiptist í tvo málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2022–2024. Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun.

Fjárhagsleg þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2022–2024

Útgjaldarammi - heildaryfirlit og breytingar eftir tilefnum

Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefna­sviðsins eftir helstu tilefnum sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.

Breytingar á ramma milli áranna 2023–2024

Heildargjöld málefnasviðs 08 Sveitarfélög og byggðamál árið 2024 eru áætluð 33.593,6 m.kr. og aukast um 1.782,6 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2023 eða sem svarar til 5,9%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 3.224,6 m.kr. milli ára eða sem svarar til 10,6%.

Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun, t.a.m. þannig að nýju útgjaldasvigrúmi hafi að einhverju leyti verið jafnað á móti aðhaldsmarkmiði. Aðhaldsmarkmiðið felur m.a. í sér sértækar afkomubætandi aðhaldsráðstafanir á málefnasviðum og er nánar fjallað um þær í kafla 5 Gjöld ríkissjóðs.

Útgjaldarammi - hagræn skipting útgjalda

Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2022 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.

Útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2022 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu

08.10 Framlög til sveitarfélaga

Starfsemi málaflokksins er í höndum Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sem er á ábyrgð innviðaráðherra. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðar-skiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.

Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2024 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2023. Þannig endurspegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2024

Framkvæmdaraðili

Breyting á fjárveitingu til verkefnis

Markmið 1: Sveitarfélög á Íslandi verði öflug og sjálfbær og ýti undir lýðræðislega virkni íbúa.

Endurskoðun sveitarstjórnarlaga, m.a. ákvæða um fjármál, birtingu fyrirmæla, þátttöku í atvinnurekstri, samráð við íbúa, heimild um persónuupplýsingar, reikningsskil, siðareglur og hagsmunaskráningu.[1]

Innviðaráðuneyti

Innan ramma

Endurskoðun tekjustofna sveitarfélaga til að styrkja fjárhagslegan grundvöll þeirra til lengri tíma.[2]

Innviðaráðuneyti

Innan ramma

Endurskoðun regluverks Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til að stuðla að markvissari og réttlátari úthlutun.[3]

Innviðaráðuneyti

Innan ramma

Átak til að stuðla að markvissari árangri sveitarfélaga á sviði umhverfis- og loftslagsmála.[4]

Innviðaráðuneyti

Innan ramma

Markmið 2: Sjálfstjórn og ábyrgð sveitarfélaga virt og tryggð verði sem jöfnust réttindi og aðgengi íbúa að þjónustu.

Áskoranir búsetufrelsis greindar út frá gildandi lögum. Sérstaklega verður skoðað hvort ástæða sé til breytinga á lögum um lögheimili og aðsetur.[5]

Innviðaráðuneyti

Innan ramma

     

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2024 er áætluð 31.762,6 m.kr. og hækkar um 2,028,5 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 1.432,2 m.kr.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 2.801 m.kr. til lögbundins framlags í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga í samræmi við tekjuspá.
  2. Fjárheimild málaflokksins lækkar um 750 m.kr. þar sem fjármagn færist til dómsmálaráðuneytis vegna breytinga á Innheimtustofnun sveitarfélaga og verkefni stofnunarinnar færast til ríkisins og hún verður lögð niður.
  3. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 22,5 m.kr.

08.20 Byggðamál

Málaflokkurinn skiptist í fimm viðföng sem heyra undir innviðaráðherra, þ.e. byggðaáætlun, sóknaráætlanir landshluta, Byggðastofnun, atvinnuráðgjafar á landsbyggðinni og jöfnun flutningskostnaðar. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl. Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2024 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2023. Þannig endurspegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2024

Framkvæmdaraðili

Breyting á fjárveitingu til verkefnis

Markmið 1: Jafna aðgengi að þjónustu.

Skilgreina hvað felst í opinberri þjónustu með það að markmiði að jafna aðgengi og þjónustustig. Jafnframt að greina heildarkostnað vegna þjónustusóknar.

Innviðaráðuneyti

Innan ramma

Styrkja rekstur dagvöruverslana í minni byggðalögum til að viðhalda mikilvægri grunnþjónustu.

Innviðaráðuneyti

Innan ramma

Jafna aðgengi landsmanna að heilbrigðisþjónustu með því að nýta ákvæði í lögum um Menntasjóð námsmanna og fjölga þannig sérfræðingum á heilbrigðissviði á landsbyggðinni.[6]

Heilbrigðisráðuneyti

Innan ramma

Markmið 2: Jafna tækifæri til atvinnu.

Búsetufrelsi eflt með fjölgun atvinnutækifæra og auknum fjölbreytileika starfa á landsbyggðinni, m.a. með því að störf hjá ríkinu verði ekki staðbundin nema eðli starfsins krefjist þess sérstaklega.

Innviðaráðuneyti

Innan ramma

Afhendingaröryggi raforku aukið og aðgengi að áreiðanlegri orku á landsvísu jafnað með jarðstrengjavæðingu dreifikerfis og þrífösun.[7]

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti

Innan ramma

Nýsköpun í byggðum landsins efld, m.a. með því að koma á fót stafrænni nýsköpunargátt fyrir frumkvöðla og fræðslu- og stuðningsaðila nýsköpunar.[8]

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti

Innan ramma

Markmið 3: Stuðla að sjálfbærri þróun byggða um land allt.

Spornað við viðvarandi fólksfækkun í smærri byggðalögum, m.a. í gegnum verkefnið Brothættar byggðir.

Innviðaráðuneyti

Innan ramma

Framboð af fjölbreyttu íbúðarhúsnæði verði tryggt á svæðum þar sem skortur á hentugu húsnæði hamlar þróun og uppbyggingu atvinnulífs.[9]

Innviðaráðuneyti

Innan ramma

Mótuð verði heildræn nálgun á aðlögun sveitarfélag að áhrifum loftslagsbreytinga.[10]

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti

Innan ramma

     

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2024 er áætluð 1.831 m.kr. og lækkar um 245,9 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 9,8 m.kr.

Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild málaflokksins lækkar alls um 215 m.kr. vegna tímabundinna framlaga sem falla niður. Um er að ræða framlag vegna sóknaráætlana landshluta 120 m.kr., framlag vegna atvinnuráðgjafa á landsbyggðinni 40 m.kr. og framlag vegna uppbyggingar atvinnulífs á Seyðisfirði 55 m.kr.
  2. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 43,9 m.kr. og er skipt hlutfallslega niður á stofnanir og verkefni málaflokks.

[1] Verkefnið samræmist ríkisstjórnarsáttmála.

[2] Verkefnið samræmist ríkisstjórnarsáttmála.

[3] Verkefnið samræmist ríkisstjórnarsáttmála og styður við húsnæðisstefnu.

[4] Verkefnið samræmist ríkisstjórnarsáttmála og styður við byggðaáætlun, samgönguáætlun, landsskipulagsstefnu og húsnæðisstefnu.

[5] Verkefnið styður við aðgerð A.15 í byggðaáætlun.

[6] Verkefnið styður við heilbrigðisstefnu og menntastefnu.

[7] Verkefnið styður við orkustefnu og nýsköpunarstefnu.

[8] Verkefnið styður við nýsköpunarstefnu og klasastefnu.

[9] Verkefnið styður við húsnæðis- og skipulagsáætlanir sveitarfélaga, húsnæðisáætlun og landsskipulagsstefnu.

[10] Verkefnið styður við stefnu um aðlögun að loftslagsbreytingum, landsskipulagsstefnu og landsáætlun um aðlögun að loftslagsbreytingum (í vinnslu, ágúst 2023).

Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum