Hoppa yfir valmynd

30 Vinnumarkaður og atvinnuleysi

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð félags- og vinnumarkaðsráðherra. Það skiptist í tvo málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu ásamt fjárhagslegri þróun þeirra og málefnasviðsins í heild á tímabilinu 2022–2024.

Heildarútgjöld í m.kr.

Framtíðarsýn og meginmarkmið

Framtíðarsýn málefnasviðsins er stöðugleiki á vinnumarkaði sem þykir mikilvæg forsenda jafnvægis og vaxtar í efnahagslífi. Forsenda þess að sótt verði fram í átt að bættum lífskjörum er að velferð þátttakenda á vinnumarkaði verði höfð í fyrirrúmi sem og að stuðlað verði að því að fólk sé virkt í samfélaginu og líði vel í starfi í öruggu og heilsusamlegu starfsumhverfi sem ætlað er að tryggja vellíðan starfsfólks þannig að það verði m.a. í stakk búið til að takast á við ný verkefni á vinnumarkaði framtíðarinnar. Með þessu móti sé unnið að því að allir komi heilir heim frá vinnu. Þannig má ætla að best verði stuðlað að því að íslenskt atvinnulíf verði samkeppnishæft í alþjóðlegum samanburði.

Meginmarkmið málefnasviðsins er að flestir geti verið virkir þátttakendur á vinnumarkaði, óháð kyni, aldri, búsetu, fötlun eða skertri starfsgetu til að sjá sér og sínum farborða en almenn þátttaka á vinnumarkaði er talin ein þýðingarmesta leiðin til að koma í veg fyrir félagslega einangrun, vanlíðan og fátækt. Þá verði aðstæður á vinnustöðum í samræmi við framþróun og bestu þekkingu á hverjum tíma en í því sambandi þykir m.a. mikilvægt að skoða áhrif loftslags- og tæknibreytinga á íslenskan vinnumarkað og stuðla að réttlátum umskiptum.

Framtíðarsýn og meginmarkmið málefnasviðsins er þannig í samræmi við velsældar­áherslur ríkisstjórnarinnar, s.s. hvað varðar andlegt heilbrigði einstaklinga og virkni þeirra í námi og starfi.

Fjármögnun

Gert er ráð fyrir að fjárheimildir málefnasviðsins lækki um 2,9 ma.kr. á tímabili fjármálaáætlunarinnar. Það skýrist einkum af því að tímabundin fjárheimild 2,4 ma.kr. vegna stuðnings til greiðslu launa starfsfólks á almennum vinnumarkaði vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ sem kom inn í fjárlögum 2024 fellur niður 2025.

Í meðfylgjandi töflu má sjá fjárheimildir málefnasviðsins til næstu fimm ára og áætlaða skiptingu þeirra í rekstur og tilfærslur annars vegar og fjárfestingu hins vegar.

Útgjaldarammi í m.kr.

Helstu áherslur 2025–2029

Virkniöryggi

30.1 vinnumarkaður og atvinnuleysi

Verkefni

Málaflokkurinn tekur til aðstoðar við einstaklinga í atvinnuleit, mats á vinnufærni þeirra og skipulags virkra vinnumarkaðsaðgerða sem og starfsendurhæfingar. Undir málaflokkinn heyra m.a. Vinnumálastofnun, Atvinnuleysistryggingasjóður, Tryggingasjóður sjálfstætt starfandi einstaklinga, Ábyrgðasjóður launa, vinnumál, atvinnuleysi, starfsendurhæfing og starfsendurhæfingarsjóðir.

Helstu áskoranir

Málaflokkurinn hefur tengingu við velsældaráherslur ríkisstjórnarinnar um virkni í námi og starfi og andlegt heilbrigði.

Fjallað var um helstu áskoranir málaflokksins á bls. 433–435 í fjármálaáætlun 2023–2027 og er hér vísað til þeirrar umfjöllunar.

Almennt atvinnuleysi lækkaði á árinu 2023. Í ársbyrjun var almennt atvinnuleysi 3,7% en var komið niður í 3,6% í árslok og var að meðaltali 3,25% á árinu, samanborið við 3,9% árið 2022. Í lok desember 2023 var 7.241 einstaklingur skráðir án atvinnu hjá Vinnumálastofnun, 4.151 karl og 3.090 konur. Samhliða lækkandi atvinnuleysi hefur langtímaatvinnulausum (sem verið hafa lengur en 12 mánuði án atvinnu) fækkað nokkuð en í árslok 2022 var fjöldinn 1.786 einstaklingar, þar af var um að ræða 981 karl og 805 konur en í árslok 2023 var fjöldinn 1.127 einstaklingar þar af 626 karlar og 501 kona. Vinnumálastofnun vinnur markvisst með einstaklingum sem hafa verið án atvinnu í langan tíma við að styrkja stöðu þeirra á vinnumarkaði með viðeigandi stuðningi og úrræðum auk þess sem stofnunin vinnur að því að finna störf við hæfi hvers og eins.

Tækifæri til umbóta

Líkt og kemur fram í sameiginlegri umfjöllun um málaflokka 27.1 og 27.2 er stefnt að því að leggja til lagabreytingar þar sem lagt verður til að stuðst verði við samþætt sérfræðimat á getu til virkni á vinnumarkaði. Mun verða lögð áhersla á fyrirbyggjandi aðgerðir og snemmtæka íhlutun sem og að auka samstarf heilsugæslu, félagsþjónustu sveitarfélaga, Vinnumálastofnunar, VIRK og Tryggingastofnunar en mikilvægt þykir jafnframt að efla áfram þau þjónustuúrræði sem ætluð eru til að styðja fólk til þátttöku á vinnumarkaði.

Það eru helstu markmið Vinnumálastofnunar, hvað varðar þjónustu við atvinnuleitendur, að koma í veg fyrir að einstaklingar verði langtímaatvinnulausir og að finna langtíma­atvinnu­lausum sem og einstaklingum með mismikla starfsgetu störf við hæfi, s.s. með samningum við fyrirtæki og stofnanir. Einnig er horft til aukinnar þátttöku í námi í samstarfi við menntakerfið sem og til þess að fjölga að einhverju marki þeim sem nýta sér endurhæfingarúrræði í samstarfi við endurhæfingaraðila. Slíkar aðgerðir eru afar mikilvægar til að draga úr hættu á viðvarandi óvirkni og hugsanlegri örorku en rannsóknir hafa sýnt að löng fjarvera frá vinnumarkaði getur ógnað heilsu og lífsgæðum einstaklinga. Í febrúar 2023 hófst sérstakt verkefni hjá Vinnumálastofnun þar sem lögð er áhersla á þjónustu og stuðning við þann hóp sem verið hefur lengst án atvinnu en markmið verkefnisins er að aðstoða langtímaatvinnulausa við að komast að nýju út á vinnumarkað sem og að greina þann vanda sem hindrar þátttöku á vinnumarkaði sé slíkur vandi til staðar.

Ætla má að mikil tækifæri séu fólgin í þeirri heildarendurskoðun á atvinnuleysistryggingakerfinu sem staðið hefur yfir þar sem m.a. verður unnt að aðlaga atvinnuleysistryggingakerfið að breytingum á vinnumarkaði, s.s. hvað varðar breytt ráðningarform.  

Í mars 2024 lögðu ríkisstjórn Íslands og Samband íslenskra sveitarfélaga sameiginlega fram aðgerðir til að greiða fyrir kjarasamningum á vinnumarkaði til næstu fjögurra ára.  Meðal þess sem þar kemur fram er að hámarksábyrgð úr Ábyrgðasjóði launa verði hækkuð í tveimur áföngum, úr 633.000 kr. á mánuði í 850.000 kr. þann 1. apríl 2024 og í 970.000 kr. á mánuði 1. janúar 2025. Þá muni stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðarins sameiginlega leggja mat á tekjuöflun og ráðstöfun tryggingagjalds með það að markmiði að tryggja langtímajafnvægi í fjármögnun þeirra réttinda sem það stendur undir í Ábyrgðasjóði launa, Fæðingarorlofssjóði, starfsendurhæfingarsjóði og Atvinnuleysistryggingasjóði.

Áhættuþættir

Það sem helst getur komið í veg fyrir að markmið innan málaflokksins náist er skortur á viðeigandi störfum á vinnumarkaði þannig að sem flest geti verið þátttakendur á vinnumarkaði þrátt fyrir mismikla starfsgetu og óháð þjóðerni, menntun eða aldri.

Markmið og mælikvarðar

Markmið

HM

Mælikvarðar

Staða 2023

Viðmið 2025

Viðmið 2029

Draga úr fjarveru frá vinnumarkaði.

8,5

8,6

Aukin virkni mæld sem fjöldi lang­tímaatvinnulausra sem afskrá sig hjá Vinnumálastofnun áður en þau hafa fullnýtt bótarétt sinn innan atvinnuleysis-tryggingakerfisins.

1.929

1.800

1.500

8,5

8,6

Árangur úrræða mældur sem hlutfall þeirra sem hafa verið ráðnir til starfa með ráðningarstyrk og hafa ekki verið skráðir atvinnuleitendur að nýju innan sex mánaða eftir að tímabili ráðningarstyrks lýkur.

68%

75%

80%

Efla stuðningsúrræði fyrir einstaklinga með skerta starfsgetu í tengslum við þátttöku þeirra á vinnumarkaði.

8.3

3.4

Fjöldi nýrra starfstækifæra í samstarfi við atvinnulíf fyrir fólk með skerta starfsgetu.

347

450

580

           

Gerð var breyting frá fyrri fjármálaáætlun á síðari mælikvarða við markmið nr. 1 þar sem áður var mælt hlutfall einstaklinga sem eru skráðir hjá Vinnumálastofnun í atvinnuleit en afskrá sig hjá stofnuninni vegna vinnu/náms/vinnumarkaðsúrræða og hafa ekki skráð sig aftur án atvinnu hjá stofnuninni sex mánuðum síðar. Nú tekur mælingin aðeins til svokallaðra ráðningarstyrkja en slík mæling þykir betur til þess fallin að mæla árangur af þjónustu við þann hóp einstaklinga sem þarf á sérstakri þjónustu að halda.

30.2 vinnumarkaður

Verkefni

Málaflokkurinn tekur til vinnuverndar og sáttamiðlunar á vinnumarkaði. Undir málaflokkinn heyra Vinnueftirlit ríkisins og embætti ríkissáttasemjara.

Vinnuvernd felur í sér að starfsumhverfi á vinnustöðum sé öruggt og heilsusamlegt og annast Vinnueftirlit ríkisins eftirlit með vinnuumhverfi vinnustaða á landinu, þ.m.t. vinnuvélum og tækjum.

Sáttamiðlun á vinnumarkaði fellur einnig undir málaflokkinn en embætti ríkissáttasemjara annast sáttastörf í vinnudeilum. Enn fremur ber embættinu skylda til að halda skrá yfir gildandi kjarasamninga, fylgjast með ástandi og horfum í atvinnulífi og á vinnumarkaði um allt land, einkum þróun kjaramála og þáttum sem geta valdið ágreiningi í samskiptum samtaka atvinnurekenda og samtaka stéttarfélaga.

Helstu áskoranir

Ein helsta áskorun málaflokksins hvað varðar vinnuvernd felst í því að hvetja vinnustaði landsins til að starfa markvisst að vinnuvernd þar sem áhersla er lögð á vellíðan og öryggi starfsfólks sem og til að sjá til þess að vinnuvernd verði hluti daglegrar starfsemi þeirra. Árangursríkt vinnuverndarstarf er samstarfsverkefni atvinnurekenda og starfsfólks til að viðhalda og bæta öryggi og aðbúnað á vinnustöðum. Tilgangurinn er að koma auga á áhættuþætti í vinnuumhverfi og að bregðast við þeim, m.a. svo unnt sé að koma í veg fyrir vinnuslys, hvers konar heilsutjón og vanlíðan starfsfólks. Til þess að forvarnir skili árangri er lykilþáttur að vinnustaðamenningin sé heilbrigð og þar ríki öryggismenning þar sem öll bera ábyrgð. Í því sambandi þykir jafnframt mikilvægt að skoða áhrif loftslags- og tæknibreytinga á íslenskan vinnumarkað þannig að unnt verði að setja fram tillögur um aðgerðir til að mæta þeim. Í því felst jafnframt sú áskorun að ná til ólíkra hópa með fræðslu og upplýsingum samhliða þeim öru breytingum sem eru á störfum á íslenskum vinnumarkaði.

Með öflugri vinnuvernd má draga úr nýgengi örorku og efla framleiðni á vinnumarkaði. Vinnuumhverfið getur haft neikvæð áhrif á vellíðan og heilsu fólks þegar ekki er hugað að vinnuvernd og getur það leitt til óvinnufærni til skemmri eða lengri tíma en stoðkerfis­sjúkdómar og geðraskanir virðast vera helstu orsakir örorku hér á landi. Þá sýna erlendar rannsóknir að konur eru almennt meira frá vinnu vegna streitutengdra einkenna en karlar. Í því sambandi verður m.a. að horfa til þess að vinnustaðir þar sem áhrif frá sálfélagslegum áhættu­þáttum og áhættuþáttum sem hafa áhrif á hreyfi- og stoðkerfi starfsfólks eru mikil eru oftar en ekki vinnustaðir þar sem konur eru meiri hluti starfsfólks en skólar og vinnustaðir innan heil­brigðiskerfisins hafa verið nefndir sem dæmi um slíka vinnustaði.

Stöðugleiki á vinnumarkaði er mikilvæg forsenda jafnvægis og vaxtar í efnahagslífi. Einn af megináhættuþáttum málaflokksins að því er varðar sáttamiðlun á vinnumarkaði er fjöldi kjaradeilna milli samtaka aðila vinnumarkaðarins á hverjum tíma. Áskorun málaflokksins í þessu sambandi er að bæta vinnubrögð og styðja við samninganefndir með það að markmiði að einn kjarasamningur taki við af öðrum í því skyni að auka fyrirsjáanleika fyrir launafólk og launagreiðendur og minnka hættu á átökum á vinnumarkaði.

Tækifæri til umbóta

Málaflokkurinn hefur tengingu við velsældaráherslur ríkisstjórnarinnar um virkni í námi og starfi og andlegt heilbrigði, auk þess sem málefnasviðið hefur tengingu við áherslur stjórnvalda þess efnis að sem flest geti verið virk á vinnumarkaði.

Öll njóta ávinnings af góðri vinnuvernd þar sem starfsfólki líður vel í starfi en ætla má að slíkar aðstæður auki framleiðni og dragi úr líkum á fjarveru fólks á vinnumarkaði. Það er óum­deilt að atvinnulífið nýtur góðs af virkri þátttöku sem flestra á vinnumarkaði og það sama á við um samfélagið í heild sinni þar sem gera má ráð fyrir að mikil atvinnuþátttaka fólks dragi úr kostnaði samfélagsins, s.s. í tengslum við heilbrigðisþjónustu, starfsendurhæfingu og lífeyris­greiðslur. Áhersla þarf því að vera á forvarnir í því skyni að tryggja að öll komi heil heim frá vinnu starfsævina á enda en í því sambandi þarf m.a. að huga að sálfélagslegum áhættuþáttum, áhættuþáttum sem tengjast hreyfi- og stoðkerfi, hættum frá vélum og efnum sem og umhverfis­áhrifum.

Vinnueftirlit ríkisins leggur áherslu á að hvetja til samfélagslegrar umræðu um mikilvægi vinnuverndar þannig að stuðlað sé að jákvæðri ímynd og viðhorfi almennings til vinnuverndarstarfs. Einnig er mikilvægt að styðja og hvetja vinnustaði landsins til að innleiða vinnustaðamenningu þar sem áhersla er lögð á vellíðan og öryggi starfsfólks. Til þess að vekja athygli á framangreindum þáttum ýtti Vinnueftirlit ríksins úr vör á árinu 2023 í samvinnu við félags- og vinnumarkaðsráðuneytið viðamiklu átaksverkefni undir yfirskriftinni: #Tökum höndum saman: Eflum heilbrigða vinnustaðamenningu. Þá var einnig á árinu 2023 komið á fót vinnuverndarsjóði í samstarfi við ráðuneytið með því markmiði að efla rannsóknir og stuðla að bættri vinnuvernd á íslenskum vinnumarkaði.

Mikilvægt er að ríkissáttasemjari hafi yfirsýn yfir efndir kjarasamninga og bjóði upp á sáttamiðlunarþjónustu og stuðning á gildistíma kjarasamninga. Slík aðferðafræði eykur líkur á að einn samningur taki við af öðrum. Þá er mikilvægt að samningsaðilar geti komið sér saman um launaupplýsingar og efnahagsforsendur kjarasamninga áður en viðræður hefjast.

Skref í þá átt var stigið við skipun kjaratölfræðinefndar en með skipun nefndarinnar var stofnað til sam­starfs heildarsamtaka á vinnumarkaði, ríkis og sveitarfélaga um gerð og hagnýtingu tölfræði­gagna um laun og efnahag til undirbúnings og eftirfylgni með kjarasamningum. Nefndin hóf störf í desember 2019 og hefur birt sjö skýrslur sem allar hafa það að markmiði að fyrir liggi áreiðanlegar upplýsingar og sameiginlegur skilningur aðila um laun og efnahag sem nýtast við undirbúning og eftirfylgni kjarasamninga á hverjum tíma. Skýrslurnar eru aðgengilegar á vef Kjaratölfræðinefndar.

Áhættuþættir

Það sem helst getur komið í veg fyrir að markmið innan málaflokksins náist hvað varðar öflugt vinnuverndarstarf á vinnustöðum landsins er að ekki takist að ná til vinnustaða landsins um mikilvægi góðrar vinnuverndar. Takist ekki að innleiða árangursríkt vinnuverndarstarf á vinnustöðum er hættara en ella á slysum og vanlíðan hjá starfsfólki sem getur haft í för með sér neikvæðar afleiðingar fyrir einstaklingana sjálfa sem og tilheyrandi kostnað fyrir atvinnu­lífið og samfélagið allt.

Það sem helst getur komið í veg fyrir að það markmið innan málaflokksins náist að efla fyrirbyggjandi sáttamiðlun við gerð kjarasamninga á vinnumarkaði er að aðilar vinnu­markaðarins, með eða án atbeina eða stuðnings ríkissáttasemjara, eigi ekki í virku samtali áður en gildistími kjarasamninga rennur út.

Markmið og mælikvarðar

Markmið

HM

Mælikvarðar

Staða 2023

Viðmið 2025

Viðmið 2029

Öruggari og

heilsusamlegri

vinnustaðir.

8.8.,

5.4,

Hlutfall vinnustaða með

áætlun um öryggi og

heilbrigði.

51,74%

60%

80%

8.8.,

5.4

Hlutfall vinnustaða sem hafa

vinnuverndarfulltrúa

(öryggisnefndir /öryggistrúnaðarmenn/öryggisverðir).

46,7%

52%

70%

8.8.,

5.4

Fjöldi vettvangsathugana og

stafræn samskipti hjá

Vinnueftirliti ríkisins.

1.325

2.000

2.000

Efla fyrirbyggjandi

sáttamiðlun ríkissáttasemjara við gerð kjarasamninga á vinnumarkaði.

8.0,

8.8,

Hlutfall kjarasamninga þar

sem ríkissáttasemjari veitir

samningsaðilum sáttamiðlunarþjónustu og stuðning

á gildistíma fyrri kjarasamnings.

30%

50%

50%

           
Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Yfirlit

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum