Fréttatilkynningar

Frumvarp til sviðslistalaga

7.10.2011

Á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytis hefur um skeið verið unnið að endurskoðun á leiklistarlögum nr. 138/1998.  Mennta- og menningarmálaráðherra hyggst leggja fram frumvarp þess efnis á Alþingi á yfirstandandi þingi.

Við endurskoðunina er grundvöllur laganna víkkaður út til að ná til allra sviðslista. Í frumvarpinu eru auk ákvæða um Þjóðleikhúsið sett ákvæði um Íslenska dansflokkinn sem hefur starfað skv. sérstökum reglum sem settar voru á grundvelli 1. mgr. 14. gr. leiklistarlaga. Þá eru í frumvarpinu ákvæði um sviðslistasjóð og sviðslistaráð.

Þeim sem vilja koma á framfæri ábendingum vegna frumvarpsins er bent á að senda þær til mennta- og menningarmálaráðuneytisins á netfangið postur@mrn.is eigi síðar en 30. nóvember 2011.


Senda grein

Fréttatilkynningar




Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica