Styrkir af safnliðum 2015
Mennta- og menningarmálaráðuneyti hefur úthlutað styrkjum til verkefna er stuðla að faglegri uppbyggingu á sviði menningarmála.
Í auglýsingu ráðuneytisins eftir umsóknum 9. október 2014 var áhersla lögð á úthlutun til verkefna á sviði listgreina, menningararfs og uppbyggingar landsmótsstaða. Mennta- og menningarmálaráðuneyti tók til meðferðar 107 umsóknir þar sem sótt var um styrki alls að fjárhæð 393.784.715 kr. Alls eru veittir 35 styrkir að þessu sinni.
Eftirfarandi umsækjendur og verkefni hlutu styrki fyrir árið 2015:
Jóhann Sigmarsson - Miðbaugs- minjaverkefnið | 700.000 |
Akureyrarbær - Unglingalandsmót UMFÍ 2015 | 8.300.000 |
Ari Trausti Guðmundsson - Vefsíða um myndlistarmanninn Guðmund Einarsson frá Miðdal |
250.000 |
ASSITEJ, Samtök um barna- og unglingaleikhús á Íslandi - Alþjóðleg sviðslistahátíð ASSITEJ fyrir unga áhorfendur |
500.000 |
Bandalag íslenskra skáta - Björgun menningararfs skátahreyfingarinnar | 1.000.000 |
Bandalag íslenskra skáta - Landsmótsuppbygging á Úlfljótsvatni og viðvörunarkerfi vegna neyðaráætlana á stórmótum skáta |
2.000.000 |
Bandalag sjálfstæðra leikhúsa - Rekstur 2015 | 3.000.000 |
Bókmenntahátíð í Reykjavík - Bókmenntahátíð í Reykjavík 2015 | 2.500.000 |
Blönduósbær - Landsmót UMFÍ 50+ | 6.000.000 |
Byggðasafn Vestfjarða - Menntasmiðja Guðmundar J. Sigurðssonar á Þingeyri | 600.000 |
Dansk-íslenska félagið - Aldarafmæli félagsins | 1.000.000 |
Dudo ehf. - Iceland Writers Retreat | 300.000 |
Félag leikmynda- og búningahöfunda - Fulltrúi Íslands á heimsýningunni Prague Quadrennial 2015 |
600.000 |
Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi - UNESCO skólar á Íslandi | 750.000 |
Félag um listasafn Samúels - Hús Samúels | 1.000.000 |
Golfklúbburinn Leynir - Aðstöðuuppbygging fyrir Íslandsmót í höggleik | 5.000.000 |
IBBY á Íslandi - Starfsemi árið 2015 | 500.000 |
Íslandsdeild ICOM - alþjóðaráð safna - Starfsemi 2015 | 700.000 |
Íslenska dansfræðafélagið - NOFOD Reykjavík 2015 | 500.000 |
Íslenska málfræðifélagið - Starfsemi 2015 | 200.000 |
Jón Þ. Þór - Ævisaga Boga Th. Melsted, efnisöflun | 250.000 |
Lókal, leiklistarhátíð - Lókal leiklistarhátíð 2015 | 3.000.000 |
Listfræðafélag Íslands - NORDIK 2015, norræn listfræðiráðstefna | 600.000 |
Mats Wibe Lund sf. - Heimildarmyndasafnið „Ásýnd Íslands úr lofti“ | 200.000 |
Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs o. fl. - Þjóðleikur 2015 | 1.500.000 |
Vináttufélag Íslendinga og Baska - Spánverjavígin 1615 - 400 ára minning | 1.800.000 |
Reykjavík Dance Festival - Reykjavík Dance Festival 2015 | 2.500.000 |
Rithöfundasamband Íslands - Rekstur 2015, erlent samstarf, Höfundamiðstöð og Skáld í skólum |
4.000.000 |
Samband íslenskra myndlistarmanna - Rekstur 2015 og Dagur myndlistar | 5.000.000 |
Samtök um danshús - Dansverkstæðið - vinnustofur danshöfunda | 1.500.000 |
Skógarmenn KFUM – Vatnaskógi - Uppbygging á landsmótssvæði, þjónustuskáli og tjaldstæði |
3.000.000 |
Snorrastofa í Reykholti - Forn trúarbrögð Norðursins, alþjóðlegt verkefni | 2.000.000 |
Tónlist fyrir alla - Skólatónleikar á Íslandi 2015 | 5.000.000 |
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús ohf. Upptakturinn - Tónsköpunarverðlaun barna og ungmenna |
500.000 |
Þjóðbúningaráð - Rekstur 2015 | 600.000 |
Reykjavík 3. febrúar 2015