Menntamál
Menntamál
Leikskólar
Leikskólinn er fyrsta skólastigið, er ætlaður börnum undir skólaskyldualdri. Leikskóladvöl er ætluð börnum undir skólaskyldualdri og er frjálst val foreldra.
Grunnskólar
Öllum börnum og unglingum á aldrinum 6-16 ára er skylt að sækja 10 ára grunnskóla. Skólaárið er 9 mánuðir að lágmarki.
Framhaldsskólar
Þeir sem lokið hafa grunnskólanámi, hafa hlotið jafngilda undirstöðumenntun eða hafa náð 16 ára aldri eiga rétt á að hefja nám í framhaldsskóla. Þeir eiga jafnframt rétt á því að stunda nám í framhaldsskóla til 18 ára aldurs vegna fræðsluskyldu við ólögráða nemendur ef þeir brjóta ekki skólareglur.
Háskólar
Nemendur sem hefja nám í háskóla skulu hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu námi. Sjö háskólar eru viðurkenndir af mennta- og menningarmálaráðuneytinu. Nánari upplýsingar eru að finna undir vísinda- og háskólamál
Framhaldsfræðsla
Með framhaldsfræðslu er átt við hvers konar nám, úrræði og ráðgjöf sem er ætlað að mæta þörfum einstaklinga með stutta formlega skólagöngu að baki og er ekki skipulagt á grundvelli laga um framhaldsskóla eða háskóla.
Mat og úttektir
Starfandi er innan ráðuneytisins mats- og greiningarsvið sem hefur umsjón með því að gerðar séu reglulega úttektir á öllum skólastigunum.
Námskrár
Ráðuneytið sér um að gerðar séu námskrár fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla.

