Danskt-íslenskt samstarfsverkefni um stuðning við dönskukennslu á Íslandi
Árið 1996 var komið á samstarfi milli menntamálaráðuneyta Íslands og Danmerkur um sérstakan stuðning við dönskukennslu. Árið 2000 var verkefnið staðfest með samningi sem hefur verið undirritaður síðan á fjögurra ára fresti. Í nóvember 2011 undirrituðu Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Christine Antonini barna- og menntamálráðherra Danmerkur nýjan og örlítið breyttan samning sem gildir til ársins 2014.
Markmið samstarfsverkefnisins eru að:
- styðja við dönskukennslu í íslenskum skólum með sérstöku tilliti til munnlegrar færni
- miðla danskri menningu í íslenskum skólum
- auka áhuga á dönsku og vitund um mikilvægi málskilnings fyrir Íslendinga.
Af hálfu Dana er um að ræða árlega rammafjárveitingu í fjárlögum sem nemur 3,1 milljónum danskra króna á árunum 2011 og 2012 en hún lækkar í 2,8 milljónir danskra króna á árunum 2013 og 2014.
Af hálfu Íslendinga er um að ræða árlega rammafjárveitingu sem nemur 6,0 milljónum íslenskra króna til sérstakra verkefna.
Í samstarfsnefndinni eiga sæti tveir fulltrúar Íslendinga og þrír fulltrúar Dana
