Námskrárdrög til umsagnar
Drög að nýrri aðalnámskrá leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla og sameiginlegur inngangskafli fyrir öll skólastigin eru birt til kynningar á vefsvæði þessu.
Frestur til að skila inn athugasemdum um drög að inngangskafla og aðalnámskrám leikskóla er til 20. desember 2010, en frestur til að skila inn athugasemdum um drög að aðalnámskrá framhaldsskóla er til 20. janúar 2011.
Að loknu umsagnarferlinu mun ráðuneytið bregðast við innsendum ábendingum og athugasemdum. Stefnt er að útgáfu á aðalnámskrá leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla í byrjun árs 2011.
