Hoppa yfir valmynd
19. ágúst 2011 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Ytra mat á grunnskólum : tillögur til mennta- og menningarmálaráðherra og skólamálanefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga um tilhögun á ytra mati í grunnskólum

Haustið 2010 var stofnaður faghópur til að meta hvort grundvöllur væri fyrir samstarfi sveitarfélaga og mennta- og menningarmálaráðuneytis um reglubundið ytra mat á grunnskólum að teknu tilliti til laga um grunnskóla. Faghópnum var falið að móta hugmynd að samstarfi og leggja fram skriflega tillögu um útfærslu hennar. 
Faghópurinn lauk störfum í mars 2011 og lagði fram eftirfarandi skýrslu með tillögum. Gert er ráð fyrir að unnið verði áfram með tillögur faghóps og endanleg útfærsla á ytra mati getur því verið með öðrum hætti en lagt er til í skýrslunni. 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum