Hoppa yfir valmynd
11. febrúar 2016 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Menningarsjóður Íslands og Finnlands

Tilgangur sjóðsins er að efla menningartengsl Íslands og Finnlands.

Tilgangur sjóðsins er að efla menningartengsl Íslands og Finnlands. Sjóðurinn veitir árlega styrki til einstaklinga, samtaka, félaga og stofnana vegna verkefna sem geta orðið til að efla samskipti Íslands og Finnlands á sviði menningar, lista, atvinnulífs og þjóðlífs almennt.

Vakin er athygli á að árið 2017 verða 100 ár liðin frá því að Finnland öðlaðist sjálfstæði. Af því tilefni mun sjóðurinn sérstaklega líta til umsókna sem tengjast finnskum menningarverkefnum á Íslandi og sem tengjast 100 ára afmæli Finnlands.

Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum vegna verkefna sem eru fyrirhuguð á síðari hluta ársins 2016 og fyrri hluta ársins 2017.

  • Frestur til að leggja inn umsóknir um styrki úr sjóðnum vegna þessa tímabils rennur út 31. mars 2016.
  • Æskilegt er að umsóknir séu ritaðar á sænsku, dönsku eða norsku.
  • Einungis er hægt að sækja um rafrænt á: vef Hanaholmen
  • Fyrirspurnir vegna umsókna má senda á: [email protected]

Frekari upplýsingar um Menningarsjóð Íslands og Finnlands má finna á vef mennta- og menningarmálaráðuneytis

Stjórn Menningarsjóðs Íslands og Finnlands.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum