Hoppa yfir valmynd
14. janúar 2013 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Efling fjármálalæsis

Samningur undirritaður milli mennta- og menningarmálaráðuneytis og Samtaka fjármálafyrirtækja um átak og aðgerðir til að efla fjármálalæsi í grunn- og framhaldsskólum.

Efling fjármálalæsis
Efling fjármálalæsis

Unnið er með markvissum hætti að eflingu fjármálalæsis í grunn – og framhaldsskólum. Í dag undirrituðu Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Höskuldur Ólafsson formaður  Samtaka fjármálafyrirtækja samning um átak og aðgerðir til að efla fjármálalæsi í grunn- og framhaldsskólum. Samningurinn felur í sér að samtökin fjármagna verkefnið,  þar á meðal laun verkefnisstjóra og námsefnisgerð.

Samstarfið hefur staðið yfir frá miðju ári 2011 þegar mennta- og menningarmálaráðherra skipaði stýrihóp til þess að efla fjármálafræðslu í grunn- og framhaldsskólum. Markmiðið er að efla þessa fræðslu í skólakerfinu markvisst  með hliðsjón af gildandi lögum og aðalnámskrám í samráði við ýmsa aðila. Efnt verður til tilraunakennslu í samráði við fjóra grunnskóla og tvo framhaldsskóla. Sex skólar hafa verið valdir til tilraunakennslu á þessu sviði. Á grunnskólastigi eru það Melaskóli, Hagaskóli, Hafralækjarskóli og Litlu Laugaskóli og á framhaldsskólastigi Menntaskólinn á Akureyri og Fjölbrautaskólinn við Ármúla.

Bundnar eru miklar vonir um að tilraunakennslan leiði í ljós hvar og hvernig þessari fræðslu verði best fyrir komið í náminu þannig að tryggt sé að allir nemendur fái notið hennar í framtíðinni. Gerð verður könnun í upphafi og lok tilraunakennslunnar á fjármálalæsi nemenda og niðurstöðurnar nýttar til þess að skipuleggja kennslu á þessu sviði til framtíðar.

Í nýjum aðalnámskrám er læsi skilgreint í víðum skilningi og innan þess hugtaks er fjármálalæsi.
Markmiðið með kennslunni er að fræða ungmenni um fjármál og efnahagsmál til þess að þau verði hæfari til að takast á við eigin fjármál og skilja betur efnahagskerfi heimsins. Þá er einnig stefnt að því að kennsla í fjármálum skipi hærri sess í skólum en nú er. Þá er auk þess eitt af markmiðum tilraunakennslunnar að þróa nýtt námsefni sem hægt verði að nota í framtíðinni.

  • Verkefnisstjóri átaksins, Ragnhildur Björg Guðjónsdóttir, veitir frekari upplýsingar í síma 692 42 05 eða í gegnum netfangið: [email protected]

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum