Hoppa yfir valmynd
14. mars 2013 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Umsækjendur um embætti skólameistara Verkmenntaskóla Austurlands

Umsóknarfrestur um stöðu skólameistara við Verkmenntaskóla Austurlands rann út föstudaginn 8. mars sl. Mennta- og menningarmálaráðuneyti bárust fimm umsóknir um stöðuna.

Umsóknarfrestur um stöðu skólameistara við Verkmenntaskóla Austurlands rann út föstudaginn 8. mars sl. Mennta- og menningarmálaráðuneyti bárust fimm umsóknir um stöðuna. Umsækjendur eru:

Einar Már Sigurðarson, skólastjóri,
Elvar Jónsson, framhaldsskólakennari,
Eysteinn Þór Kristinsson, deildarstjóri,
Helgi Geir Sigurgeirsson, framhaldsskólakennari og
Pjétur St. Arason, framhaldsskólakennari.

Miðað er við að mennta- og menningarmálaráðherra skipi í stöðuna til fimm ára frá 1. ágúst nk., að fenginni umsögn hlutaðeigandi skólanefndar, sbr. 1. mgr. 6. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996, með síðari breytingum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum