Hoppa yfir valmynd
30. nóvember 2007 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir til háskólanáms í Danmörku

Umsóknarfrestur er til 15. janúar 2008

Stjórnvöld í Danmörku bjóða fram fjóra styrki til handa Íslendingum til háskólanáms í Danmörku skólaárið 2007-2008. Styrkirnir eru ætlaðir þeim sem komnir eru nokkuð áleiðis í háskólanámi og eru miðaðir við 9 mánaða námsdvöl en til greina kemur að skipta þeim ef henta þykir. Styrkfjárhæðin er 5.000 d.kr. á mánuði. Umsóknarfrestur er til 15. janúar 2008.

Umsóknir um ofangreinda styrki, ásamt staðfestum afritum prófskírteina og meðmælum, skulu sendar menntamálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, á sérstökum umsóknareyðublöðum sem þar fást, ásamt nánari upplýsingum. Umsóknareyðublöð og upplýsingar er einnig hægt að nálgast á vefsíðu CIRIUS í Danmörku.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum