Hoppa yfir valmynd
28. janúar 2011 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Auglýsing frá Menningarsjóði Íslands og Finnlands

Tilgangur sjóðsins er að efla menningartengsl Finnlands og Íslands. Í því skyni veitir sjóðurinn árlega ferðastyrki og annan fjárstuðning.

finnland
finnland

Tilgangur sjóðsins er að efla menningartengsl Finnlands og Íslands. Í því skyni veitir sjóðurinn árlega ferðastyrki og annan fjárstuðning. Styrkir verða öðru fremur veittir einstaklingum en stuðningur við samtök og stofnanir kemur einnig til greina.

Styrkir til að sækja norrænar eða alþjóðlegar ráðstefnur koma að jafnaði ekki til greina.

Umsóknir um styrki úr sjóðnum fyrir tímabilið 1. júní 2011 - 31. maí  2012 skulu berast sjóðsstjórninni Hanaholmen - kulturcentrum för Sverige og Finland, FI-021000 Esbo, Finland, í síðasta lagi 1. mars 2011.  Ákvörðun um úthlutun úr sjóðnum verður tekin fyrir lok maí nk.

Æskilegt er að umsóknir séu ritaðar á sænsku, dönsku eða norsku.

  • Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar er að finna á vef Hanaholmen

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum