Doktorsnám við EMBL, sameindalíffræðistofnun Evrópu
Til umsóknar er doktorsnám við EMBL, sameindalíffræðistofnun Evrópu. EMBL býður upp á doktorsnám í sameindalíffræði, lífupplýsingum og skyldum greinum og geta Íslendingar sótt um námsdvöl við stofnunina. Nemendur sem teknir eru inn í námið fá framfærslustyrk á meðan á námi stendur og er öll aðstaða til fyrirmyndar, m.a. góð aðstaða fyrir fjölskyldufólk og leikskóli á staðnum. Stofnunin er í fremstu röð á sínu sviði. Þeir sem lokið hafa eins til tveggja ára rannsóknatengdu framhaldsnámi (MS eða fjórða árs verkefni) að loknu BS prófi í sameindalíffræði eða skyldum greinum eða í verk-, stærð- og tölvunarfræði, eru hvattir til að kynna sér tilhögun doktorsnáms við EMBL og senda inn umsókn.
- Umsóknarfrestur er til 18. nóvember en skrá þarf umsóknina fyrir 11. nóvember. Allar upplýsingar um námið er að finna á vef EMBL.
- Einungis er tekið við umsóknum á netinu. Frekari fyrirspurnir má senda til [email protected]. Einnig má hafa samband við Katrínu Valgeirsdóttur ([email protected]) eða Eirík Steingrímsson ([email protected]).