Hoppa yfir valmynd
22. janúar 2013 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Dagsetningar samræmdra könnunarprófa í 4., 7. og 10. bekk í grunnskólum 2013

Í lögum um grunnskóla nr. 91/2008 segir að samræmd könnunarpróf í íslensku og stærðfræði skuli lögð fyrir alla nemendur í 4. og 7. bekk grunnskóla.

Samræmd próf 2013
samræmd próf 2013

Í lögum um grunnskóla nr. 91/2008 segir að samræmd könnunarpróf í íslensku og stærðfræði skuli lögð fyrir alla nemendur í 4. og 7. bekk grunnskóla. Jafnframt er kveðið á um að nemendur 10. bekkjar skuli á fyrri hluta skólaársins þreyta samræmd könnunarpróf í íslensku, ensku og stærðfræði.

Tilgangur samræmdra könnunarprófa í grunnskólum er m.a. að athuga að hvaða marki námsmarkmiðum aðalnámskrár í viðkomandi námsgrein eða námsþáttum hafi verið náð, vera leiðbeinandi um áherslur í kennslu fyrir einstaka nemendur og veita nemendum, foreldrum og skólum upplýsingar um námsárangur og námsstöðu nemenda.

Dagsetningar samræmdra könnunarprófa í 4., 7. og 10. bekk haustið 2013 verða sem hér segir:


10. bekkur

Íslenska  

         mánudagur    23. september    
Enska               þriðjudagur    24. september    
Stærðfræði     miðvikudagur    25. september            

4. og 7. bekkur

Íslenska

          fimmtudagur    26. september            
Stærðfræði
     föstudagur    27. september            
        

Ákvörðun um prófdaga samræmdra könnunarprófa haustið 2013 var tekin í samráði við Námsmatsstofnun  sem sér um framkvæmd prófanna. Reglugerð um fyrirkomulag og framkvæmd samræmdra könnunarprófa er aðgengileg á vef ráðuneytisins.

Samræmd könnunarpróf hefjast klukkan 9:00 að morgni og er gert ráð fyrir að þau raski sem allra minnst venjulegu skólahaldi. Próftími er breytilegur eftir aldri nemenda og má sjá ítarlegar upplýsingar um hann í kafla 2. í Handbók um uppbyggingu og framkvæmd samræmdra könnunarprófa árið 2013 sem sett verður á vef Námsmatsstofnunar í mars 2013.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum