Hoppa yfir valmynd
9. júní 2009 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Menntamálaráðherra afhenti foreldraverðlaun Heimilis og skóla - landssamtaka foreldra

Foreldraverðlaun Heimilis og skóla - landssamtaka foreldra voru afhent í 14. sinn þann 4. júní, við athöfn í Þjóðmenningarhúsi við Hverfisgötu. Katrín Jakobsdóttir afhenti verðlaunin.

Menntamálaráðherra með verðlaunahöfum
Heimiliogskoli_040609_01

Foreldraverðlaun Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra voru afhent í 14. sinn þann 4. júní, við athöfn í Þjóðmenningarhúsi við Hverfisgötu. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra afhenti verðlaunin.

Handhafar Foreldraverðlaunanna 2009 eru eftirtaldir:

  • Grunnskólinn á Blönduósi og Fræðsluskrifstofa A- Húnavatnssýslu hljóta Foreldraverðlaunin 2009 fyrir verkefnið Tökum saman höndum.
    Markmið verkefnisins er að bæta líðan og námsárangur nemenda í unglingadeild grunnskólans á Blönduósi.

Auk foreldraverðlaunanna sjálfra voru veitt hvatningarverðlaun og dugnaðarforkaverðlaun.

Hvatningarverðlaun:

  • Samstarfsverkefni Kópavogsskóla og Gjábakka. Markmið verkefnis er að brúa bilið á milli kynslóða.

Dugnaðarforkur:

38 tilnefningar bárust til verðlaunanna að þessu sinni og voru 34 verkefni tilnefnd.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum