Hoppa yfir valmynd
29. október 2010 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Norrænir styrkjamöguleikar - Kynningafundir

Í tengslum við þing Norðurlandaráðs 2. - 4. nóvember verða haldnir kynningafundir um samnorræna styrkjamöguleika á nokkrum sviðum.

Í tengslum við þing Norðurlandaráðs 2. - 4. nóvember verða haldnir kynningafundir um samnorræna styrkjamöguleika á nokkrum sviðum. Margar samnorrænar stofnanir senda fulltrúa á þingið, og var tækifærið nýtt til þess að vera með sameiginlegar kynningar á þeim stofnunum sem veita mestu fé í styrki.

Fundirnir eru haldnir í samvinnu við Norræna húsið.

Fundirnir verða þrír og eru þemaskiptir:

  • Styrkir til menningar og lista, 2. nóvember kl. 15-17, Listaháskóli Íslands
  • Styrkir til nýsköpunar og rannsókna, 3. nóvember kl. 9-11, Norræna húsið
  • Styrkir til umhverfis- og orkumála, 3. nóvember kl. 14-16, Norræna húsið

Styrkirnir eru fyrir fyrirtæki, stofnanir, félagasamtök og einstaklinga, þó breytilegt eftir sviðum.

Skráning á kynningarfundina fer fram á netfanginu: [email protected] - nauðsynlegt er að tilkynna á hvaða fund er verið að skrá mætingu.

Vinsamlegast tilkynnið mætingu fyrir 1. nóvember.


Nánari upplýsingar um kynningafundina er að finna hér

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum