Hoppa yfir valmynd
26. janúar 2011 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Framlag til norsks-íslensks menningarsamstarfs

Markmið framlagsins er að stuðla að fjölbreyttu menningarsamstarfi Noregs og Íslands og geta Norðmenn og Íslendingar sótt um framlag til verkefna sem mikilvæg teljast í báðum löndum og vera líkleg til að leiða til varanlegra tengsla milli fagmanna, listamanna og fræðimanna.

Árið 1994 ákváðu norsk stjórnvöld að leggja til árlegt framlag til norsks-íslensks menningarsamstarfs sem Haraldur V Noregskonungur kynnti í heimsókn sinni til Íslands vegna 50-ára afmælis íslenska lýðveldisins. Framlaginu skyldi ráðstafað í samráði íslenska mennta- og menningarmálaráðuneytisins og norska menningarmálaráðuneytisins. Hið árlega framlag er nú um 1.300.000 norskar krónur.

Markmið framlagsins er að stuðla að fjölbreyttu menningarsamstarfi Noregs og Íslands og geta Norðmenn og Íslendingar sótt um framlag til verkefna sem mikilvæg teljast í báðum löndum og vera líkleg til að leiða til varanlegra tengsla milli fagmanna, listamanna og fræðimanna. Verkefnin skulu endurspegla fjölbreytt listræn form og hafa í senn skírskotun til sögunnar og samtímans.  

Leiðbeiningar fyrir umsækjendur

Umsækjendur skulu senda verkefnalýsingu til norska menningarmálaráðuneytisins með upplýsingum um markmið verkefnisins ásamt verkefnis-, framkvæmdar-, fjárhags- og fjármögnunaráætlun. Staðlað umsóknareyðublað er ekki fyrir hendi en umsóknir má senda rafrænt til [email protected] eða til Kulturdepartementet, Postboks 8030 Dep, N-0030 Oslo.

  • Allar umsóknir sem berast ráðuneytinu fyrir febrúarlok ár hvert verða metnar í mars.

Ef framlagið hefur ekki verið fullnýtt eftir aðalúthlutun í mars munu ráðuneytin tvö meta umsóknir að nýju að hausti. Að verkefni loknu skal skýrslu skilað til norska menningarmálaráðuneytisins í samræmi við þær reglur sem gilda fyrir ríksisstyrkþega.

Að jafnaði er áhugamannahópum svo sem kórum og hljómsveitum ekki veittur ferðastyrkur. Ekki er greiddur heildarkostnaður verkefna.

Ef þörf er á frekari upplýsingum má hafa samband við norska menningarmálaráðuneytið, s. 0047 22 24 90 90 eða  [email protected]

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum