Hoppa yfir valmynd
9. maí 2011 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Nám er vinnandi vegur

Nám er vinnandi vegur byggir á tillögum frá samráðshóp ráðuneyta, allra þingflokka, aðila vinnumarkaðarins og hreyfinga námsmanna sem forsætisráðherra skipaði. Í heild verða framlög til menntamála með átakinu aukin um sjö milljarða króna næstu þrjú ár.

Nám er vinnandi vegur 2011
Nám er vinnandi vegur 2011

Nám er vinnandi vegur byggir á tillögum frá samráðshóp ráðuneyta, allra þingflokka, aðila vinnumarkaðarins og hreyfinga námsmanna sem forsætisráðherra skipaði. Fjármögnun átaksins var tryggð með samráði ríkisstjórnar og aðila vinnumarkaðarins í tengslum við gerð kjarasamninga en í heild verða framlög til menntamála með átakinu aukin um sjö milljarða króna næstu þrjú ár.
Framhaldsskólinn verður efldur og opnaður. Atvinnuleitendum verður gefið tækifæri til að mennta sig, sérstakur þróunarsjóður stofnaður til að efla starfstengt nám og samstarf skóla og fyrirtækja um starfstengt nám verður aukið. Lög um LÍN og framfærslukerfi námsmanna verða endurskoðuð, skil framhaldsskóla og fullorðinsfræðslu verða gerð sveigjanlegri, námsráðgjöf efld og vinnustaðanámssjóður styrktur.
Nám er vinnandi vegur byggir á því markmiði Íslands 2020 að hlutfall Íslendinga á aldrinum 20-66 ára sem ekki hafa lokið námi í framhaldsskóla fari úr 30% niður í 10% fyrir árið 2020.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum