Hoppa yfir valmynd
5. janúar 2012 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Íþróttir skipta okkur öll máli

Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, skrifar um stefnumótun í íþróttamálum.
Íþróttir
Íþróttir

Á nýju ári fagnar Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands aldarafmæli sínu. Að baki sambandinu standa um 150 þúsund félagar, þar af um 85 þúsund iðkendur. Íþróttir hafa mikla þýðingu í samfélaginu hvort sem fólk stefnir að afrekum í íþróttum, tekur þátt í keppnisíþróttum, eða vill einfaldlega stunda holla og skemmtilega hreyfingu sem bæði eflir heilsu og félagsþroska. Á þessum tímamótum er mikilvægt að minnast þess hvernig sjálfboðaliðar hafa byggt upp íþróttahreyfinguna um áratuga skeið. Þessi vinna hefur verið mikilvæg fyrir æsku landsins og samfélagið allt, auk þess sem hér hefur komið fram íþróttafólk á heimsmælikvarða.

Síðastliðið haust gaf mennta- og menningarmálaráðuneytið út stefnumótun í íþróttamálum til ársins 2015. Hún er sameiginleg stefna þeirra aðila sem bera ábyrgð á málaflokknum, sem eru ríkið, sveitarfélögin og íþróttahreyfingin.  Stefnan byggist á því grundvallarsjónarmiði að almennt íþróttastarf á Íslandi skuli skipulagt af frjálsum félagasamtökum. Hún tekur að auki á öllum helstu þáttum íþrótta í félagastarfi og hvernig opinberir aðilar og atvinnulíf  geti stutt við það starf.  Stefnan tekur einnig á öllum helstu þáttum íþrótta í félagastarfi og hvernig opinberir aðilar og atvinnulíf geti stutt við það starf. Þá er lögð sérstök áhersla á að auka hreyfingu barna og unglinga á öllum skólastigum. Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt fram á nauðsyn þess að bæta lífsstíl fólks og gegnir skólakerfið leiðandi hlutverki við að hvetja til hreyfingar og að auka þekkingu á gildi íþrótta. Við mótun stefnunnar var horft til framtíðar og tekið mið af því sem áunnist hefur á undanförnum árum. Sett eru fram skýr markmið og bent á leiðir til að framfylgja þeim. Stefna þessi gildir til ársins 2015 og verður hún þá endurmetin.

Stefna í íþróttamálum tekur mið af þeim lagaskyldum sem ríkið hefur samkvæmt íþróttalögum, alþjóðalögum og samningum sem tengjast opinberum aðilum og frjálsum félagasamtökum, sem fara með íþróttamál í landinu.  Auk þess birtist hún í framlögum á fjárlögum til íþróttamála og áherslum mennta- og menningarmálaráðherra hverju sinni. Til þess að vinna að framgangi stefnunnar er mikilvægt að aðilar sem bera ábyrgð á málaflokknum, þ.e. ríkið, sveitarfélögin og íþróttahreyfingin, hafi með sér samráð og samstarf. Byggt er á því grundvallarsjónarmiði að almennt íþróttastarf á Íslandi skuli skipulagt af frjálsum félagasamtökum. Þar er vísað til Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, Ungmennafélags Íslands, sérsambanda, íþróttahéraða, íþróttafélaga og deilda um land allt. Stór hluti landsmanna tekur þátt í þessu starfi á einn eða annan hátt.

Til þess að fylgja stefnumótuninni eftir hefur mennta- og menningarmálaráðuneytið að undanförnu unnið að gerð samnings við ÍSÍ til þess að fylgja eftir stefnumótuninni til ársins 2015. Samhliða þeirri vinnu er mikilvægt að skoða á vettvangi stjórnmálanna hvernig eigi að þróa fjárframlög ríkisins til íþróttamála þannig að fylgja megi stefnunni eftir sóma. Að lokum óska ég ÍSÍ hjartanlega til hamingju með aldarafmælið.  

Katrín Jakobsdóttir  
Höfundur er mennta- og menningarmálaráðherra  

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum