Hoppa yfir valmynd
1. febrúar 2012 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Alþjóðlegi netöryggisdagurinn, 7. febrúar 2012

Alþjóðlegi netöryggisdagurinn verður haldinn hátíðlegur í níunda sinn þann 7. febrúar næstkomandi.

netöryggisdagurinn2012
netöryggisdagurinn2012

Alþjóðlegi netöryggisdagurinn verður haldinn hátíðlegur í níunda sinn þann 7. febrúar næstkomandi. Þemað í ár er „Tengjum kynslóðir” og munu yfir 60 þjóðir um allan heim standa fyrir skipulagðri dagskrá þennan dag þar sem til umfjöllunar verða ýmis verkefni þar sem tæknin tengir kynslóðir saman. Áhersla verður lögð á að kynslóðir miðli af þekkingu sinni og reynslu milli kynslóða, en þannig má stuðla að jákvæðri og öruggri notkun Netsins.

Netöryggismiðstöðvar 30 Evrópuþjóða, sem mynda Insafe netverkið (www.saferinternet.org), og nærri 40 önnur lönd munu þennan dag leiða saman ungt fólk og fullorðna til þess að vekja athygli á og ræða um netið. Netverkið hefur látið framleiða stutta auglýsingu til þess að styðja við átakið, en hún verður aðgengileg á netinu (www.saft.is) og sýnd í sjónvarpi næstu daga.

Í tilefni dagsins stendur SAFT fyrir málþingi í Bratta, aðalbyggingu Menntavísindasviðs Háskóla Íslands v/Stakkahlíð, kl. 13.00-16.00. Málþingið er haldið í samstarfi við ráðuneyti innanríkis-,velferðar-, mennta- og menningarmála, Póst og fjarskiptastofnun, Microsoft Íslandi  og Háskóla Íslands. Fundarstjórar verða Hrefna Sigurjónsdóttir, framkvæmdarstjóri Heimilis og skóla, og Sigurbergur I. Jóhannsson, ungmennaráði SAFT.

Dagskrá:

13.00 - Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, setur málþingið
13.10 - Ari Eldjárn, uppistandari: Hvernig er líf án Netsins og hvernig verður Netið í framtíðinni?
13.25 - Diljá Helgadóttir, ungmennaráði SAFT: Áhrif internetsins á samskipti fólks
13.45 - Ólafía Dögg Ásgeirsdóttir, verkefnisstjóri hjá Reykjavíkurborg: Ungir uppfæra eldri borgara
14.05 - Salvör Gissurardóttir, lektor í upplýsingatækni og tölvunotkun í námi og kennslu við Menntavísindasvið HÍ:
              Félagslegur jöfnuður og Internetið
14.25 - Kaffi
14.45 - Stefán Jökulsson, lektor í kennslufræði, Menntavísindasviði HÍ: Hvað er af sem áður var? Um kynslóðamun í
              stafrænum heimi
15.05 - Einar Skúlason, kynningarstjóri Fréttablaðsins og Vísis, Markaðssviði: Siðferði, fjölmiðlar og Netið –
              fjölmiðlafólk miðlar til grunnskólanema
15.25 - Stefán Hrafn Hagalín, forstöðumaður samskiptasviðs Advania: Með tilkomu öflugra leitarvéla og
              samfélagsmiðla er einkalíf þitt og lífshlaup eins og opin bók. Friðhelgi fortíðar er fyrir bí. En skiptir það máli í
              nútímanum og hver er hættan í framtíðinni?
15.45 - Pallborðsumræður
16.00 - Veitingar


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum