Hoppa yfir valmynd
15. maí 2012 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Nýr skólameistari  Fjölbrautaskólans við Ármúla

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur skipað í embætti skólameistara Fjölbrautaskólans við Ármúla  til fimm ára.


 

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur skipað Stein Jóhannsson í embætti skólameistara Fjölbrautaskólans við Ármúla  til fimm ára.

Steinn Jóhannsson er MA í sagnfræði og diplóma í uppeldis- og menntunarfræði. Hann hefur starfað við kennslu frá 1996, m.a. í Menntaskólanum í Kópavogi og Háskóla Íslands . Hann hefur starfað sem forstöðumaður kennslusviðs við Háskólann í Reykjavík frá árinu 2002.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum