Hoppa yfir valmynd
10. október 2012 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Innritun í framhaldsskóla á vorönn 2013

Innritun í dagskóla fyrir vorönn 2013 fer fram á menntagatt.is dagana 1. nóvember til 23. nóvember 2012. Einstakir skólar kunna að bjóða upp á lengra innritunartímabil og eru upplýsingar um það á vefsíðu viðkomandi skóla.
Innritun í dagskóla fyrir vorönn 2013 fer fram á menntagatt.is dagana 1. nóvember til 23. nóvember 2012.

Einstakir skólar kunna að bjóða upp á lengra innritunartímabil og eru upplýsingar um það á vefsíðu viðkomandi skóla. Rafrænt umsóknareyðublað og nauðsynlegar upplýsingar um innritunina má nálgast á menntagatt.is. Þar eru einnig upplýsingar um nám í framhaldsskólum og námsframboð.

Umsækjendur um nám í dagskóla
Umsækjendur sem ekki hafa veflykil tiltækan geta sótt hann á menntagatt.is. Þegar umsækjendur hafa fengið veflykil opnast þeim aðgangur að innrituninni. Nemum sem koma erlendis frá er bent á að setja sig í samband við þá skóla sem þeir hafa áhuga á að sækja um.

Umsóknir um nám í kvöldskóla og fjarnám
Innritun í kvöldskóla, fjarnám og annað en nám í dagskóla fer fram í þeim framhaldsskólum sem hafa það í boði. Skólarnir auglýsa umsóknarfrest sjálfir og leggja til umsóknareyðublöð. Umsækjendum er bent á að snúa sér til viðkomandi skóla. Upplýsingar um framhaldsskólana má finna á menntagatt.is

Allar nánari upplýsingar um innritun á vorönn 2013 eru veittar í framhaldsskólunum. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið [email protected]

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum