Hoppa yfir valmynd
8. nóvember 2012 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Þjóðminjasafn fær viðurkenningu

Er til fyrirmyndar í vinnuverndarstarfi.
Þjóðminjasafn
Þjóðminjasafn
Á vinnuverndarráðstefnu, sem haldin var nýlega í tilefni vinnuverndarvikunnar 2012, veitti Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra fjórum fyrirtækjum og stofnunum viðurkenningar fyrir að vera til fyrirmyndar í vinnuverndarstarfi sínu og var þá sérstaklega horft til forystu stjórnenda og virkrar þátttöku starfsmanna í hinu kerfisbundna vinnuverndarstarfi. Þjóðminjasafnið var eina ríkisstofnunin í þeim hópi en auk þess fengu verkfræðistofan Mannvit, Reykfiskur á Húsavík og Fljótsdalsstöð Landsvirkjunar viðurkenningu.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum