Hoppa yfir valmynd
21. desember 2012 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Öll félög um rekstur Hörpu sameinuð

Öll félög um rekstur tónlistar og ráðstefnuhússins Hörpu hafa verið sameinuð í eitt. Hið sameinaða félag hefur hlotið nafnið „Harpa – tónlistar- og ráðstefnuhús ehf.“.

Harpa
Harpa

 

  • Eigendastefna hefur verið samþykkt.
  • Ný stjórn kjörin á hluthafafundi.

Öll félög um rekstur tónlistar og ráðstefnuhússins Hörpu hafa verið sameinuð í eitt. Hið sameinaða félag hefur hlotið nafnið „Harpa – tónlistar- og ráðstefnuhús ehf“. Um nokkurt skeið hefur verið unnið að því að efla rekstur Hörpu og einfalda félagauppbygginguna í kringum tónlistar- og ráðstefnuhúsið og er þetta stór áfangi í þeirri vinnu.

Þann 20. desember var haldinn hluthafafundur í Austurhöfn, yfirfélagi Hörpu, sem jafnframt var fyrsti fundur eigendanefndar hússins, en það er sem kunnugt er í eigu ríkisins (56%) og Reykjavíkurborgar (44%). Á fundinum var samþykkt eigendastefna fyrir Hörpu og jafnframt var ákveðið að hefja samruna Austurhafnar og Hörpu, að undanskildu lóðafélaginu Sítusi, sem verður sjálfstætt og mun heyra beint undir ríki og borg. Þegar því samrunaferli lýkur í lok janúar hafa öll félögin um Hörpu verið sameinuð í eitt sem er stór áfangi á þeirri leið að gera rekstur hússins skilvirkari og markvissari. Lýstu allir fundarmenn mikilli ánægju með þennan áfanga og samþykktu jafnframt starfsreglur fyrir stjórn Hörpu, svo allir ferlar mættu vera sem skýrastir. Hið sameinaða félag mun verða opinbert hlutfafélag, ohf.

  • Nýja stjórn Hörpu skipa: Helga Jónsdóttir, formaður, Haraldur Flosi Tryggvason, varaformaður, Pétur Ásgeirsson, Helga Margrét Reykdal, Kjartan Örn Ólafsson, Þórunn Sigurðardóttir og Svanhildur Konráðsdóttir.
  • Forstjóri Hörpu er Halldór Guðmundsson.

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum