Hoppa yfir valmynd
13. ágúst 2013 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Samningur undirritaður við Fisktækniskólann

Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra skrifaði undir samning við Fisktækniskóla Íslands um kennslu í fisktækni.

samningur_undirritadur_vid_fisktaekniskolann
samningur_undirritadur_vid_fisktaekniskolann

Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra skrifaði undir samning við Fisktækniskóla Íslands um kennslu í fisktækni

Í dag undirrituðu Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra og Ólafur Þór Jóhannsson, formaður stjórnar, fyrir hönd Fisktækniskóla  Íslands, samning til eins árs um kennslu í fisktækni í tilraunaskyni. Um er að ræða kennslu í fiskvinnslu, fiskveiðum og fiskeldi samkvæmt námsbrautarlýsingum í skólanámskrá, sem samþykkt var af ráðuneytinu 2012. Kennslan fer að mestu fram í Grindavík en einnig er unnið að uppbyggingu náms í fisktækni víða um landið í samstarfi við heimamenn á hverjum stað. Jafnframt er í samningnum gert ráð fyrir að skólinn þrói námsbrautir á sviði fisktækni og standi að kynningum á námi í fisktækni í samstarfi við framhaldsskóla og framhaldsfræðsluaðila.  30 nemendur munu stunda nám við skólann í Grindavík í haust.

Fisktækniskóla Íslands  í Grindavík var komið á fót á vordögum 2010 og hefur það að
markmiði að bjóða grunnnám á sviði veiða (hásetanám), fiskvinnslu og fiskeldi á
framhaldsskólastigi ásamt endurmenntun fyrir starfandi fólk. Þá mun skólinn bjóða nám í
netagerð (veiðafæragerð) á grundvelli samstarfssamnings við Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
Skólinn er afurð samstarfs Grindavíkurbæjar, fyrirtækja og stéttarfélaga á Suðurnesjum
á sviði veiða, vinnslu og fiskeldis.  Einnig Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum,
fræðsluaðila og einstaklinga á Suðurnesjum sem tóku sig saman og stofnuðu félag til að
efla menntun og fræðslu á Íslandi á sviði veiða, vinnslu og fiskeldis.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum