Hoppa yfir valmynd
15. ágúst 2013 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Hæfnimiðað námsmat- lærum hvert af öðru. Málþing um námsmat - upptala aðgengileg á vef

Mennta- og menningarmálaráðuneyti í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga og Kennarasamband Íslands stendur fyrir málþingi þann 30. ágúst um námsmat samkvæmt nýjum aðalnámskrám leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla.

Mennta- og menningarmálaráðuneyti í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga og Kennarasamband Íslands stendur fyrir málþingi þann 30. ágúst nk. um námsmat samkvæmt nýjum aðalnámskrám leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla. Málþingið verður haldið í Flensborgarskólanum í Hafnarfirði og í hátíðarsal Háskólans á Akureyri föstudaginn 30. ágúst, frá kl. 14.00-17.00.

Á málþinginu verða nokkur erindi í upphafi og síðan verða fjölbreyttar málstofur um ýmsa þætti námsmats. Með málþinginu er ætlunin að beina sjónum að meginatriðum í námsmati í ljósi nýrrar menntastefnu og leiða saman fólk af öllum skólastigum til að kynna þróunarstarf, ræða um stöðuna og læra hvert af öðru.

Erindin verða send út á www.gaflari.is og www.netsamfelag.is. Er skólafólk vítt og breitt um landið hvatt til þess að taka höndum saman og skipuleggja vettvang fyrir málstofur í heimabyggð. Þeir sem ekki geta nýtt sér þennan tiltekna dag hafa því möguleika á að sækja efni ráðstefnunnar og hagnýta sér það þegar betur hentar.
Mikilvægt er að þeir sem ætla að nýta sér útsendinguna verði búnir að prófa streymið nokkrum dögum áður því varnir í tölvubúnaði geta komið í veg fyrir að útsending náist. Til að auðvelda upplýsingaflæði eru skipuleggjendur málstofa í heimabyggð beðnir  að tilnefna tengilið og senda upplýsingar á netfangið [email protected], merkt: Málþing 30. ágúst.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum