Nýr vefur um norrænt tengslanet um nám fullorðinna
Markmiðið er að verða fyrsta val við vefleit allra á Norðurlöndunum sem vilja fylgjast með þróun fullorðinsfræðslu.
Norræna ráðherranefndin kom Norræna tengslanetinu um nám fullorðinna (NVL) á fót 2005. Markmið starfseminnar er að skapa vettvang fyrir mismunandi verkefni og starfsemi, og tengja stefnu og starfendur á sviði fullorðinsfræðslu á Norðurlöndunum. NVL ber að hvetja til samræðna og nýsköpunar og stuðla að auknu samstarfi og afskipti af fullorðinsfræðslu. Norræna ráðherranefndin hefur falið Vox (Landsskrifstofu um færniþróun í Noregi) að vista alskrifstofu NVL á tímabilinu 2013-2016.
Fyrir skömmu var opnaður nýr vefur NVL og markmiðið er að vefurinn verði fyrsta val við vefleit allra á Norðurlöndunum sem vilja fylgjast með þróun fullorðinsfræðslu. Á vefnum www.nordvux.net verður nútímaleg og notendavæn kynning á nýjum skýrslum, fréttum, vísindarannsóknum, greinum, námskeiðum og ráðstefnum á breiðu sviði fullorðinsfræðslu. „Þar verður hægt að fylgjast með því sem efst er á baugi á Norðurlöndunum og einnig í annars staðar í Evrópu. Við viljum veita innblástur með dæmum og erindum frá sérfræðingum á sviðinu. Vinnulag okkar er þverfaglegt og við fögnum nýjum þátttakendum og samstarfsaðilum, við viljum að vefurinn endurspegli það“ segir framkvæmdastjórinn Antra Carlsen.
- Nánari upplýsingar fást hjá framkvæmdastjóranum í síma: +45 60133750 eða með tölvupósti á [email protected]