Nýjar skýrslur frá Eurydice
Skýrslurnar fjalla annars vegar um skólagjöld og stuðning við námsmenn á háskólastigi og hins vegar um skipulag kennslutíma og námsárs í aðildarríkjum Eurydice
Ný skýrsla um skólagjöld og stuðning við námsmenn á háskólastigi í Evrópu
Í skýrslunni er greining á skólagjöldum og stoðkerfi (styrkjum og lánum) fyrir námsmenn á háskólastigi í 33 ríkjum í Evrópu. Þar segir m.a. að í mörgum ríkjum eru engin gjöld innheimt af nemendum, innan við helmingur nemenda í Evrópu fá stuðning í formi styrkja og niðurgreidd lán eru fyrir hendi í um helmingi ríkjanna. Niðurstöðurnar eru m.a. greindar eftir ríkjum.
National Student Fee and Support Systems in European Higher Education 2014/15
Fréttatilkynning frá framkvæmdastjórn ESB: Fees and grants for students widely differ across Europe
Skýrsla um skipulag kennslutíma í grunn- og framhaldsskólum og á háskólastigi í Evrópu.
Í skýrslunni eru gögn um lengd skólaársins, upphaf og lok hvers skólaárs, tímasetning og lengd skólaleyfa í 35 aðildarríkjum Eurydice. Í skýrslunni um háskólastigið eru gögn frá hverju ríki um hvernig skólaárið er byggt upp og fleira.
The Organisation of School Time in Europe: Primary and Secondary General Education 2014/15