Hoppa yfir valmynd
7. apríl 2016 Mennta- og barnamálaráðuneytið

38 verkefni hlutu styrk úr Sprotasjóði skólaárið 2016-2017

Sprotasjóður er sameiginlegur fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla og er hlutverk hans að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi.

 Úthlutað hefur verið úr Sprotasjóði mennta- og menningarmálaráðuneytisins fyrir skólaárið 2016-2017. Alls bárust 129 umsóknir til sjóðsins og var heildarupphæð umsókna rúmar 300 millj. kr. Veittir voru styrkir til 38 verkefna að upphæð rúmlega 60 millj. kr.

Sprotasjóður er sameiginlegur fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla og er hlutverk sjóðsins að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi. Sjá: http://www.sprotasjodur.is/

 Áherslusvið sjóðsins voru að þessu sinni:

·         Frumkvöðla- og nýsköpunarmennt

·         Nemendur af erlendum uppruna

·         Námsmat á mörkum skólastiga

Stjórn sjóðsins, sem skipuð er fulltrúum frá Kennarasambandi Íslands, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Samstarfsnefnd háskólastigsins og mennta- og menningarmálaráðuneyti, mat umsóknir og gerði tillögur til mennta- og menningarmálaráðherra um styrkveitingar. Ákveðið var, eins og áður sagði, að veita styrki til 38 verkefna að upphæð rúmlega 60 millj. kr.

Styrkirnir dreifðust með eftirfarandi hætti milli skólastiga og landshluta:

Mynd_uthlutun

 

 

 

 

Hér er yfirlit yfir þau verkefni sem hlutu styrk 2016-2017

 

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum