Reglugerð um stofnun og starf fagráða Menntamálastofnunar
Mennta- og menningarmálaráðherra hefur sett reglugerð um stofnun og starf fagráða Menntamálastofnunar . Í henni kveður meðal annars á um að forstjóri stofnunarinnar setur á fót fagráð til þriggja ára í senn og setur þeim erindisbréf. Hvert þeirra skal skipað sérfróðum fulltrúum. Fagráðin skulu starfa á eftirtöldum þremur starfssviðum stofnunarinnar:
a. Náms- og gæðamat,
b. Gerð og miðlun námsgagna,
c. Upplýsingagjöf og þjónusta.
Menntamálastofnun mun auglýsa eftir aðilum í fagráð á grundvelli viðmiða sem fjallað er um í 3. gr. reglugerðarinnar. Upplýsingar um verklagsreglur, starfsemi fagráða og fundargerðir verða birtar á vef stofnunarinnar.