Hoppa yfir valmynd
21. apríl 2009 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Háskóli Íslands býður sumarnám - aukafjárveiting til Háskólans og Lánasjóðs íslenskra námsmanna

Háskóli Íslands hefur unnið að því undanfarnar vikur ásamt forsetum fræðasviða Háskólans, Stúdentaráði og Katrínu Jakobsdóttur menntamálaráðherra, að tryggja sumarnám við Háskólann.
Háskól Íslands
hi

Háskóli Íslands mun bjóða upp á 35 námskeið á sumarönn og gera nemendum kleift að þreyta hartnær 100 próf í haust ásamt því að bjóða þeim aðstöðu til sjálfsnáms og verkefnavinnu. Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, hefur unnið að því undanfarnar vikur ásamt forsetum fræðasviða Háskólans, Stúdentaráði og Katrínu Jakobsdóttur menntamálaráðherra, að tryggja sumarnám við Háskólann. Menntamálaráðherra, rektor og Hildur Björnsdóttir, formaður Stúdentaráðs, tilkynntu niðurstöðu úr þeirri vinnu á blaðamannafundi í Háskóla Íslands 20. apríl sl. Menntamálaráðherra sagði á fundinum að Háskóli Íslands fengi aukafjárveitingu ásamt Lánasjóði íslenskra námsmanna til að standa undir þeim kostnaði sem hlýst af þessari auknu þjónustu Háskólans. Áætlaður kostnaður vegna sumarnáms Háskólans og prófa á hans vegum er um 50 milljónir króna.

Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, sagði á fundinum að með þessu ætti skólinn að geta boðið 35 námskeið á 5 fræðasviðum skólans. Einnig myndi Háskólinn bjóða upp á próf sem byggja að hluta á sjálfsnámi og vonaðist hún til að þau gætu orðið allt að 100 talsins. Rektor sagði einnig að með þessu væri komið til móts við þarfir stúdenta auk þess sem slegið væri á þann vanda sem nú steðjar að nemendum vegna bágs atvinnuástands. Kristín lagði mikla áherslu á að Háskólinn myndi hvergi kvika frá stefnu sinni um gæði í námi í sumarskólanum.

Háskólarektor sagði að nú þegar fyrir lægi niðurstaða ráðuneytisins um fjárstuðning verði framboð skólans á sumarnámskeiðum kynnt á næstunni. Á sama hátt yrði kynnt fyrirkomulag prófa og tilhögun náms í tengslum við þau.

Háskóli Íslands mun auk þess gefa stúdentum sínum kost á að nýta húsnæðisaðstöðu í Háskólanum í sumar til að vinna að verkefnum og til náms. Fræðasvið og deildir munu einnig koma til móts við nemendur með virkri ráðgjöf og leiðbeiningu. Aðstaða verður veitt nemendum sem fá styrk frá Nýsköpunarsjóði stúdenta til að vinna að nýsköpunarverkefnum. Kennarar eru einnig að leita leiða til að fjölga nemum sem aðstoða þá við rannsóknir en það eru sumarstörf sem afla stúdentum mikilvægrar reynslu. Í sumum deildum er einnig í undirbúningi að koma á fót vinnustofum fyrir nemendur sem ætla að vinna að lokaritgerð.

Gert er ráð fyrir að nemendur Háskóla Íslands sæki sérstaklega um skráningu í sumarskólann og í þau próf sem verða í boði. Námskeið verða ekki kennd nema lágmarks þátttaka náist. Þá verður að öllum líkindum gert ráð fyrir tiltekinni lágmarksmætingu í fyrirlestra og dæmatíma. Sömuleiðis er gert ráð fyrir að lágmarks þátttaka verði í prófum í ágúst.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum