Hoppa yfir valmynd
9. nóvember 2006 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Framtíðarsýn í málefnum grunnskólans - NÝ GRUNNSKÓLALÖG

Framtíðarsýn í málefnum grunnskólans

NÝ GRUNNSKÓLALÖG

Málþing 25. nóvember 2006 kl. 9:30 – 13:00 á Hótel Nordica

Þingið er öllum opið meðan húsrúm leyfir - þátttakendum að kostnaðarlausu

Áfangaskýrsla nefndarinnar

DAGSKRÁ

9:00 Skráning

Opnunaratriði

9:30 Tangóbandið ,,El enano valiente”(Hugrakki dvergurinn)

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra flytur ávarp

Guðrún Ebba Ólafsdóttir formaður endurskoðunarnefndar: Staðan í endurskoðuninni

 

Álitamálin

 

9:50     Sölvi Sveinsson og málþingsgestir: Skólaganga eða hlaup?

Flæðandi skil skólastiga? Skólaskylda eða fræðsluskylda?

 

10:30   Anna Kristín Sigurðardóttir og málþingsgestir:

Einstaklingsmiðað nám – tálsýn eða veruleiki?

Skóli án aðgreiningar – sérfræðiþjónusta/nærþjónusta

 

Kaffihlé

 

11:30   Ingvar Sigurgeirsson og málþingsgestir: Samræmd próf, kostir og gallar.

Gæðamat í skólastarfi

 

12:10   Jón Torfi Jónasson og málþingsgestir: Hver á að ráða?

Samstarf um skólastarf – ábyrgðarsvið einstakra hagsmunaaðila, foreldra, kennara og nemenda

Samantekt og lok

 

12:50   Stutt samantekt

 

13:00   Málþingsslit

 

Ráðstefnustjóri: Guðmundur Árnason ráðuneytisstjóri menntamálaráðuneytis

,,Umræðuvaki”: Brynhildur Ólafsdóttir fréttamaður

 

Menntamálaráðuneyti boðar til málþingsins í tengslum við heildarendurskoðun á grunnskólalögum. Gert er ráð fyrir virkri þátttöku málþingsgesta í umræðum.

Skráning fer fram á www.congress.is

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum