Hoppa yfir valmynd
19. ágúst 2011 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir til atvinnuleikhópa 2012

Auglýst er eftir umsóknum um styrki á árinu 2012 til starfsemi atvinnuleikhópa er ekki hafa sérgreinda fjárveitingu á fjárlögum.

Auglýst er eftir umsóknum um styrki á árinu 2012 til starfsemi atvinnuleikhópa er ekki hafa sérgreinda fjárveitingu á fjárlögum.
Umsóknir geta miðast við einstök verkefni eða samfellt starf til lengri tíma, sbr. 16. gr. leiklistarlaga nr. 138/1998, og verður afstaða tekin til skiptingar fjárins eftir eðli umsóknanna og eftir því sem fé á fjárlögum 2012 í þessu skyni kann að segja til um.
Umsóknir skulu berast til mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir kl. 16:00 mánudaginn 3. október 2011, á eyðublöðum sem þar fást. Hér er einnig er hægt að nálgast eyðublöðin og úthlutunarreglur á rafrænu formi.

Umsóknarfrestur er til 3. október 2011 kl. 16:00.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum