Hoppa yfir valmynd

Styrkt verkefni

Þróunarlönd kalla eftir auknum fjárfestingum einkageira í atvinnu- og verðmætasköpun, þar sem lausnir og sérþekking fyrirtækja geta með áhrifamiklum hætti stuðlað að framþróun innan þeirra. Þróun á heimsvísu er sú að einkageirinn kemur sífellt sterkar inn og er orðinn jafn stór opinbera geiranum í framlögum til þróunarsamvinnu. Í mörgum tilfellum horfir einkageirinn til þróunarlanda sem hratt vaxandi framtíðarmarkaða.

Öll íslensk fyrirtæki sem eru opinberlega skráð geta sótt um styrk í Heimsmarkmiðasjóð atvinnulífs um þróunarsamvinnu. Verkefni þurfa að vera unnin í samvinnu við fyrirtæki, stofnun eða stjórnvöld í samstarfslöndum Íslands. Sjá lista yfir samstarfslönd.

Fleiri en eitt íslenskt fyrirtæki geta tekið höndum saman eða átt samstarf við félagasamtök, háskóla eða aðra slíka aðila.

Fyrirtæki geta með þróunarsamstarfsverkefnum stutt við framgang heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. 

Í samstarfi við Festu, miðstöð um samfélagslega ábyrgð hefur verið hönnuð verkfærakista fyrir fyrirtæki sem vilja stuðla að heimsmarkmiðunum.

Vel á þriðja tug fyrirtækja hafa fengið styrk úr Heimsmarkmiðasjóði atvinnulífs. Flest hafa fengið stóran styrk allt að 200.000 evrur en þriðjungur til forkönnunarverkefna sem almennt eru 2 m.kr. Um helmingur þessara verkefna koma til framkvæmda í fátækustu ríkjum heims samkvæmt skilgreiningu Þróunarsamvinnunefndar OECD (Least Developed Countries). Um er að ræða fjölbreytt ráðgjafaverkefni á sviði orku- og jarðhitamála, fiskveiði og fiskveiðistjórnunar, fjármálaþjónustu, heilbrigðisþjónustu, laga- og reglugerðaskrifa, matvælaframleiðslu og skapandi greina.  

Nánar um fyrirtæki og verkefni hér að neðan.

Listi yfir verkefni styrkt af Heimsmarkmiðasjóði atvinnulífs um þróunarsamvinnu

Fyrirtæki
Heiti verkefnis
Upphæð (ISK)
Land
VerkísGeothermal Ukraine 9.156.850Úkraína  
Marel hf.
Bætt gæði í vinnslu pangasius
7.000.000
Víetnam
Thoregs
Skyrgerð próteinvörur og mjólkurvinnsla
5.000.000
Indland
Creditinfo Group hf.
Aðgengi lítilla fyrirtækja að fjármálaþjónustu
23.345.000
Fílabeinsströndin og Senegal
Fisheries Technologies ehf.
Carice, innleiðing á TFM upplýsingakerfi
29.120.000
St. Lúcía og Dóminíka
GEG ehf.
Notkun jarðvarma við kæligeymslur fyrir epli
14.560.000
Indland
Hananja ehf.
Rephaiah verkefnið
26.875.000
Malaví
Intellecon ehf.
Bætt fiskveiðistjórnun í Viktoríuvatni
28.073.000
Úganda
Áveitan ehf.
Sjálfbært samfélag með aðgengi að vatni
29.120.000
Búrkína Fasó
BBA//Fjeldco ehf.
Skrif á reglugerðum v/ endurnýjanlegra orkugjafa
6.383.000
Kómoreyjar
Pólar toghlerar ehf.
Hringrásarhagkerfi endurvinnsla plast úrgangs
2.000.000
Senegal
Kerecis
Sáraumbúðir til bágstaddra í Kaíró
29.120.000
Egyptaland
66 Norður og UN Women
Atvinnuþróun, valdefling flóttakvenna og hringrásarhagkerfi
26.924.000
Tyrkland/ Flóttamanna- miðstöð kvenna
Aurora Seafood ehf.
Aukin hagsæld með nýtingu vannýttra auðlinda úr sjó
2.000.000
Gínea
Ocean Excellence ehf.
Kælitækni fyrir smábátaútgerðir
2.000.000
Sierra Leóne
Atmonia ehf.
Sjálfbær framleiðsla á nituráburði
2.000.000
Kamerún
Geymd ehf.
Nýjung hönnun og uppbygging. Snjallmannvirkja
2.000.000
Indland og Kenía
T16 ehf.
Skapandi greinar fyrir betri atvinnutækifæri
2.000.000
Gínea Bissá
BBA//Fjeldco og IntelleconFjölnýting jarðvarma í Kenía: Aukið matvælaöryggi5.415.000  Kenía
Pólar toghlerar ehf. og Kaldara GroupHringrásarhagkerfi og nútímavæðing fiskveiða í Kenía6.000.000  Kenía
 Mar AdvisorsBætt aðgengi sjávarfangs frá Víetnam að mörkuðum í Evrópu
2.000.000  Víetnam
 RetinaRiskBylting í eftirliti augnskimunar til að forða blindu á Indlandi
10.000.000  Indland
 Reykjavik GeothermalStofnun jarðhitarannsóknarstofu í Eþíópíu
27.900.000  Eþíópía
 VerkísBein jarðhitanotkun í Lake Assai, Djíbútí4.000.000  Djíbútí
 ÖssurÞróunaraðstoð til handa fórnarlömbum stríðasátaka í Úkraínu27.900.000  Úkraína
 Creditinfo Group hf. Aukið gagnsæi fjárhagsupplýsinga til að fyrirbyggja peningaþvætti29.060.000  Kenía, Úganda, Fílabeinsströndin, Senegal
 As we grow Valdefling handverkskvenna í Perú28.660.000 Perú
 Tern Systems Flugumsjónarkerfi fyrir minni flugvelli29.060.000 Eþíópía
 Verkís Jarðhitaverkefni á Indlandi8.718.000
Indland 
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum